Íspan þjónusta á netinu.

  • Pantaðu á netinu
  •    Mælingar
  •    Heimkeyrsla
  •    Tilboðsgjöf
  •    Sendum um land allt
  •    Leigjum sogskálar og f.l
  • Climaplus einangrunargler

Öll könnumst við við frostrósir sem myndast inni á rúðum í frosti. Frostrósirnar myndast þegar rakt og hlýtt loft kemst í snertingu við yfirborð sem er undir frostmarki. Lögun frostrósanna ræðst svo af mörgum hlutum, hreinleika glersins og hitastigi þess og hversu hlýtt og rakt loftið er. Sumar rúður mynda alltaf sama frostrósamynstrið en aðrar ekki.

Til þess að vatnssameindirnar byrji að raða sér í rósir á glerinu þurfa þær að mætast nokkrar á sama stað og á sama tíma. Á mjög sléttu gleri eru litlar líkur á því að það gerist en frostrósir leitast við að vaxa út frá örðum, rispum eða óhreinindum á glerinu. Ef mikið er af slíkum vaxtar- eða samrunastöðvum eða ef mikill raki þéttist á skömmum tíma (t.d. vegna snöggra hitabreytinga) verða frostrósirnar sem myndast litlar. Ef aðstæður eru aðrar vaxa frostrósir út frá fáum stöðum og geta orðið mjög stórar áður en þær rekast hverjar á aðra.

Lögun frostrósa getur verið missjöfn en sexföld samhverfa er mjög ráðandi og auðvelt er að sjá það með berum augum. Fyrsta myndun frostrósa er þannig venjulega agnarsmár sexhyrningur. Horn hans mynda óreglu á yfirborði glersins og mynda því eins og nýjar vatarstöðvar. Hornin eru öll eins og því vaxa sex eins armar út frá þeim. Breytingar á hitastigi, raka eða hreyfingu lofts getur truflað vöxtinn á örmunum og stuðlað að myndun nýrra vaxtarstöðva. Þá byrja ískristallar að vaxa út frá þeim og síðan koll af kolli. Lögun frostrósa minnir því oft einna helst á sex jólatré sem vaxa út frá einum sameiginlegum punkti.

Íspan ehf. / Smiðjuvegi 7 / 200 Kópavogur / Sími 54 54 300 / Fax 54 54 301
Byggir á LiSA ISP 3.2