Íspan þjónusta á netinu.

  • Pantaðu á netinu
  •    Mælingar
  •    Heimkeyrsla
  •    Tilboðsgjöf
  •    Sendum um land allt
  •    Leigjum sogskálar og f.l
  • Climaplus einangrunargler

Ábyrgðarskilmálar þessir gilda fyrir einangrunargler sem afgreitt er frá verksmiðju

ÁBYRGÐARSKILMÁLAR

Ábyrgðin bætir gallað einangrunargler með nýju einangrunargleri.
Ábyrgð á einangrunargleri gildir í fimm ár frá útgáfu reiknings. Tvö fyrir ár ábyrgðartímans nær ábyrgðin bæði til ísetningarefna og ísetningar. Ábyrgð vegna ísetningar reiknast samkvæmt mælingartaxta, eins og hann er hverju sinni, útgefinn af verðskrárnefndum Trésmíðafélag Reykjavíkur og Meistarafélag húsasmiða í Reykjavík. Þrjú síðari ár ábyrgðartímans nær ábyrgðin einungis til afhendingar nýs glers á byggingarstað, ef hann er innan bæjarmarka framleiðanda, eða til móttökustöðvar viðurkenndra flutningsaðila. Ábyrgðin nær þá ekki til ísetningar.
Ábyrgðin tekur galla vegna móðu og ryks milli glerja. Um ábyrgð vegna annarra hugsanlegra galla gilda ákvæði laga nr. 39/1922 um lausafjárkaup.
Endurnýjað gler vegna galla opnar ekki nýjan ábyrgðartíma.

ATRIÐI SEM ERU UNDANÞEGIN ÁBYRGÐ

Ábyrgðin nær ekki til eftirtalinna atriða:

- Kostnaðar við verkpalla, krana eða annars kostnaðar við að koma upp aðstöðu vegna framkvæmdarinnar.
- Kostnaðar við byggingarvinnu eða annarra vinnu við að taka í sundur byggingarhluta sem tengdir eru glugganum.
- Kostnaðar við frágang, t.d. við múrverk, smíði, málingu og annað þess háttar.

SKILYRÐI ÞESS AÐ ÁBYRGÐ VERÐI VIRK

Ábyrgðin gildir aðeins ef eftirtalin skilyrði eru uppfyllt:

- Að þess hafi verið gætt að rúðan yrði ekki fyrir óeðlilegum þvingunum, hnjaski, höggum eða hreyfingu á gluggaefni.
- Að þess hafi verið gætt að rúðan yrði ekki fyrir skemmdum vegna múrhúðunarefna, frostþenslu, rangrar geymslu eða af völdum ólífrænna efna.
- Að þess hafi verið gætt að rúðan hafi ekki hlotið óeðlilega meðhöndlun, t.d. við slíðun, sandblástur, málun eða við yfirborðsmeðhöndlun á annan hátt.
- Að glugganum sé haldið eðlilega við.
- Að glerið hafi verið greitt að fullu.

BROTAÁBYRGÐ

Brotaábyrgð framleiðanda lýkur þegar glerið hefur verið afhent kaupanda eða verið afhent á móttökustað viðurkennds flutningsaðila.

MEÐFERÐ KVARTANA

Tilkynning um galla skal að jafnaði berast til síðasta liðs í afgreiðslunni, þ.e. söluaðila, iðnaðarmanns framleiðanda á gluggu eða einingarhúsum. Í tilvikum þegar þetta er ekki unnt, skal hafa samband við gler-framleiðandann. Þegar tilkynnt er um galla skal eftir því sem unnt er, gefa eftirtaldar upplýsingar:

- Nafn kaupanda og heimilisfang.
- Hvar glerið er staðsett.
- Nafn þess sem seldi glerið.
- Nafn þess sem glerjaði.
- Hvenær glerið var afhent. Ef viðkomandi getur ekki lagt fram reikning um það hvenær glerið var keypt, skal viðkomandi glerframleiðandi, sem framleitt hefur rúðuna samkvæmt merkingu inni í henni, gefa upp hvenær hún var afgreidd.
- Hvenær var glerjað.
- Fjöldi skemmdra rúða.
- Stærð á gleri, þykkt þess og loftbil.
- Tegund glers.
- Ástæða fyrir kvörtun.

Framleiðandi glers ákveður hvort frekari rannsókn fer fram á gallanum. Í tilfellum þar sem þess þarf er kostnaður greiddur af framleiðanda, ef galli reynist vera á ábyrgð hans, að öðrum kosti greiðist kosti kostnaður af þeim sem kvörtun bar fram.

FRAMLEIÐSLUEFTIRLIT Í SAMRÁÐI VIÐ RANNSÓKNASTOFNUN BYGGINGARIÐNAÐARINS

Allir glerframleiðendur, sem eru félagar í Samtökum íslenskra húshlutaframleiðenda, hafa gert samkomulag við Rb um framleiðslueftirlit og gerðaprófun á einangrunargleri sem felur í sér eftirtalda þætti:

- Eftirlit með efni til framleiðslu á einangrunargleri.
-Heimsókn í fyrirtæki tvisvar á ári, þar sem einstakir verkþættir framleiðslunnar eru teknit út, t.d. málsetning, þvottur, merking og geymsla. Jafnframt eru tekin sýni.
-Gerðarprófun.

Þau fyrirtæki sem hafa staðist alla þrjá þættina hafa leyfi til að merkja vöru sína með merkingu IGH sem táknar framleiðslueftirlit.

VIÐHALD

Trégluggar: Líta skal eftir tréverki og fúgum (glerjunarefnum) einu sinni á ári og skal viðhald vera eftir þörfum. Tréverk, sem ekki er haldið við, dregur í sig vatn og er hætt á því að rúðan eyðileggist og timbrið brotni niður vegna veðrunar. Jafnframt er hætta á fúa. Glerlistar úr timbri hafa tilhneigingu til að losna, og skal því festa þá með skrúfum með mesta millibili 150 mm og mestu fjarlægð frá horni 50 mm. Við meðhöndlun yfirborðs skal þess gætt að borið sé vel á glerlista.

Plast- og álgluggar: Plast- og álgluggar þurfa ekkert viðhald annað en reglulega hreingerningu. Fyrir ál er hún sérstaklega nauðsynleg til að koma í veg fyrir tæringu þar sem óhreinindi geta safnast saman. Fúguefni. Óþétt fúguefni er ein algengasta orsök skemmda á einangrunargleri. Þegar rifa hefur myndast í fúgunni, og efni hennar byrjað að brotna niður og losna frá gleri eða glerlista, þarf að endurnýja fyllinguna. Glerjunarborða eða gúmmílista til glerjunnar er ekki hægt að gera við, en haft skal í huga að þessie fni brotna niður með tímanum vegna áhrifa sólar, regns og vinda, þannig að ástæða er til þess að hafa auga með þeim og skipta um þegar kominn er óþéttleiki við glerið eða glerlistann.

Toppfylling: Toppfylling kallasr 3ja- 4ra mm fúga sem er ofan á glerjunarborðanum og liggur milli glerlista og glers. Ef endurnýja þarf toppfyllinguuna er nauðsynlegt að fylgja leiðbeiningum framleiðenda efnanna um notkun þeirra.

Gluggahreinsun: Hreinsun á gleri tilheyrir ekki viðhaldi, en þó ber að gefa eftirfarandi ráð: Ef máling hefur borist á glerið er hægt að fjarlægja hana með gluggasköfum án þess að glerið skemmist. Einnig má nota stálull 00 og 000.

Athugið! Verjið glerið fyrir múrefnum málningu, t.d. með plastfilmu.


RITVERK Rb SEM FJALLA UM GLUGGA OG GLER

Sérrit.

Ástandskönnun einangrunarglers (29) 1977.
Ending einangrunarglers (34) 1985.
Svignun einangrunarglers.
Sérrit, væntanleg haustið 1991.
Efniskröfur og framleiðslueftirlit einangrunarglers.
Efniskröfur og framleiðslueftirlit með gluggum.
Rb-blöð, væntanleg haustið 1991.
Ísetning einangrunarglers í tréglugga með glerfalslistum úti Rb(31).120
Viðurkennd fúguþéttingarefni fyrir glerjun á timburhurðum Rb.(31).140
Ísetning á gluggum og hurðum í útveggi Rb(31).130
Skilgreining á göllum í einangrunargleri Rb(31).110
Rb-tækniblöð.
Einangrunargler, gerðir og eiginleikar Rb(31).103, 1976.
Einþol glers, meðferð þess og geymsla á byggingarstað, Rb(31).107,1979.
Viðgerð á einangrunargleri, Rb(31).106, 1981.
Rakaþétting á gluggum - móða, héla, hrím og ís, Rb(31).107, 1981.
Ísetning einangrunarglers, Rb(31).104.2, 1982.
Gluggar, almennir eiginleikar, Rb(31).107, 1985.
Trégluggar, almennir eiginleikar, Rb(31).108, 1985.
Álklæddir trégluggar, Rb(31).109, 1985.
Glerjun glugga, loftræsisfals (reynslublað), Rb/1/88, 1988.
Íspan ehf. / Smiðjuvegi 7 / 200 Kópavogur / Sími 54 54 300 / Fax 54 54 301
Byggir á LiSA ISP 3.2