Íspan þjónusta á netinu.

  • Pantaðu á netinu
  •    Mælingar
  •    Heimkeyrsla
  •    Tilboðsgjöf
  •    Sendum um land allt
  •    Leigjum sogskálar og f.l
  • Climaplus einangrunargler

Öryggisgler er gler sem er sérstakt á þann hátt að það veitir aukna vörn fyrir álagi. Einnig hefur öryggisgler þann kost að þegar það brotnar ekki eins og venjulegt flotgler. Öryggisgler er mikið notað í veggi innanhúss, hurðir, þakglugga og á öðrum stöðum þar sem ítrasta öryggis þarf að gæta.

Til eru nokkrar tegundir af öryggisgleri, hert gler, samlímt öryggisgler og vírgler.

Hert gler er sterkasta gerð glers. Það hefur aukin styrk og þegar það brotnar þá brotnar það í ótal litla mola en ekki í stór glerbrot en það veitir mikið öryggi. Sjá Hert gler.

Samlímt öryggisgler er gler sem búið er til úr tveimur eða fleirum lögum af gleri sem límt er saman með sérstakri filmu. Filman gerir það að verkum að ef glerið brotnar þá kemur ekki gat á glerið heldur haldast glerbrotin saman. Þannig veitist aukin vörn gegn innbrotum og einnig gegn slysum þegar gler brotnar. Samlímt öryggisgler veitir einnig afbragðs vörn gegn upplitun. Þannig ver glerið gólfefni og húsgögn gegn upplitun af völdum sólarljóss.

Vírgler er síðasta tegundin af öryggisgleri. Vírgler er eins og nafnið gegur til kynna gler sem er með innbyggðum vír. Vírinn heldur glerinu saman og veitir þannig auka vörn. Eins og samlímda glerið kemur því ekki gat í glerið ef það brotnar heldur haldast brotin saman. Vírgler er einnig hægt að nota sem eldvarnargler og veitir það vörnina E-30. Sjá Eldvarnargler.

Nánari tækniupplýsingar

Íspan ehf. / Smiðjuvegi 7 / 200 Kópavogur / Sími 54 54 300 / Fax 54 54 301
Byggir á LiSA ISP 3.2