Íspan þjónusta á netinu.

  • Pantaðu á netinu
  •    Mælingar
  •    Heimkeyrsla
  •    Tilboðsgjöf
  •    Sendum um land allt
  •    Leigjum sogskálar og f.l
  • Climaplus einangrunargler

Íspan býður upp á þann möguleika að setja sprossa á milli glerja. Sprossar eru listar sem eru settir á milli glerja til þess að láta líta út fyrir að gluggi hafi fleiri pósta en hann hefur í raun. Þannig er hægt að búa til t.d. franska glugga með því einu að skipta um gler og setja sprossa á milli. Listarnir inni í glerinu eru viðhaldsfríir.

Það eru fleiri möguleikar í stöðunni en að setja sprossa á milli glerja því einnig er hægt að setja t.d. gardínur á milli glerja. Það er hægt að setja t.d. rimlagardínur á milli glerja sem stjórnað er utan við rúðuna. Þetta er mjög hentugt þar sem þarf að vera hægt að hindra útsýni eða loka fyrir sólarljós. Gardínurnar inni í glugganum þarf auðvitað ekki að þrífa og losnar fólk þannig við leiðinda ryk sem sest gjarnan á rimlagardínur.

Íspan ehf. / Smiðjuvegi 7 / 200 Kópavogur / Sími 54 54 300 / Fax 54 54 301
Byggir á LiSA ISP 3.2