Íspan þjónusta á netinu.

  • Pantaðu á netinu
  •    Mælingar
  •    Heimkeyrsla
  •    Tilboðsgjöf
  •    Sendum um land allt
  •    Leigjum sogskálar og f.l
  • Climaplus einangrunargler

Sólvarnargler er gler sem ætlað er að draga úr áhrifum sólarljóss og minnka gegnumstreymi hita. Sólvarnargler er oft notað sem hluti af öðru einangrunargleri eins og Climaplus gleri eða hljóðvarnargleri, svo eitthvað sé nefnt. Íspan býður upp á nokkrar tegundir af sólvarnargleri.

Cool-lite SKN er hágæða sólvarnargler sem óhætt er að segja að uppfylli flestar kröfur sem hægt er að gera til sólvarnarglers hvort sem talað er um útlit og áferð glersins eða notagildi, til að mynda er einangrunargildi Cool-lite SKN 1,6 U, sem gerir það að verkum, að ekki er nauðsynlegt að nota einangrunargler (Climaplus) með því, en uppfylla þó kröfur byggingareglugerða varðandi einangrunargler. Í boði eru tvær tegundir Cool-lite SKN, 154 og 174 sem hafa mismunandi áferð og mismunandi mikið gegnumflæði ljós- og hitageisla.

Cool-lite SS-108 er sólvarnargler sem við höfum boðið um nokkurra ára skeið, Cool-lite SS-108  er einstakt í sinni röð því varla er fánlegt annað gler sem er sambærilegt hvað varðar gegnumflæði ljós- og hitageisla. Cool-lite SS-108 er með mikilli spegiláferð að utanverðu og er dökkt (brúnt) að sjá þegar horft er út, með cool-lite gleri er gegnumflæði sólarljóss einungis 8% og gegnumflæði hita einungis 6%. Cool-lite er því sérlega góður kostur t.d. í Skrifstofubyggingar og á aðra vinnustaði þar sem hitamyndun frá gluggum er mikil.

Sólgler brúnt, grænt og grátt. Litað sólgler dregur úr sólarljósi og hita og gefur ákveðið útlit að utan. Góður kostur sem sólarvörn auk þess að setja skemmtilegan svip á þær byggingar sem það hefur verið valið í. Litað sólgler er einnig hægt að nota innanhúss, t.d í milliveggi, hurðir o.fl.

Einnig bjóðum við eftirfarandi tegundir sólvarnarglers, sem við eigum yfirleitt fyrirliggjandi á lager,
Sunergy, Stopsol Super Silver og Stopsol Classic. Þess utan getum við útvegað flestar gerðir glers frá okkar byrgjum erlendis.

ATH! Sólvarnargler veitir ekki vörn gegn upplitun. Sjá gler til varnar upplitun.

Nánari tækniupplýsingar
 

Íspan ehf. / Smiðjuvegi 7 / 200 Kópavogur / Sími 54 54 300 / Fax 54 54 301
Byggir á LiSA ISP 3.2