
Njósnagler er gler sem er gagnsætt frá annarri hliðinni og ógagnsætt frá hinni hliðinni, ef birtuskilyrði eru rétt. Njósnaglerið nýtist vel þar sem þörf er fyrir útsýni án þess að það sjáist í gegnum glerið frá hinni hliðinni, t.d. í búðum, bönkum, skrifstofum o.s.frv.
Til þess að hámarka eiginleika njósnaglersins er nauðsynlegt að lýsingin sé rétt. Þar sem sjást á út verður að vera dimmt og mikil birta hjá þeim sem ekki á að sjá inn. Með lýsingarhlutfallinu 7 á móti 1 nást bestu njósnaeiginleikarnir.