
Eldvarnargler er gler sem veitir brunamótstöðu og vernd gegn eldi. Með eldvarnargleri er þannig hægt að halda aftur af eldi í ákveðinn tíma, sem veitir öryggi og svigrúm við rýmingu húsnæðis.
Eldvarnargler er skilgreint með stöfunum E, EI og EW sem standa fyrir mismunandi eiginleika glersins og einnig er glerið skilgreint með tölustöfum sem tákna mínútur.
E veitir vernd gegn reyk og eldtungum og stendur fyrir þéttleika glers. Þannig myndi E60 veita vernd í 60 mínútur áður en glerið færi að gefa sig.
EI veitir vernd gegn hitageislun og þá myndi EI60 veita vernd í 60 mínútur áður en glerið færi að gefa sig.
EW veitir auka hitageislunarvernd fyrstu mínúturnar en er þó ekki jafn mikil vörn og EI. EW30 myndi þá veita vernd gegn reyk og eldtungum í 30 mínútur og aukalega hitageislunarvernd fyrstu mínúturnar.
Íspan á til EW30 Pyroguard eldvarnargler á lager en auðveldlega er hægt að sérpanta aðrar tegundir.
Vírgler er einnig hægt að nota sem eldvarnargler og veitir það vörnina E30.
Nánari tækniupplýsingar