
Einfalt gler er í flestum tilvikum glært gler eins og flestir þekkja. Það er samt sem áður hægt að fá það í litum. (sjá litað gler). Einfalt gler hefur ýmislegt notagildi bæði innan- og utanhús í heimahúsum, skrifstofum, verslunum, hótelum, veitingastöðum o.fl.
Ýmislegt er sérsmíðað úr gleri t.d. hurðir,hillur , fiskabúr, handrið, sturtuklefar o.fl. (sjá sérsmíðað gler). Glerið sem notað er í glerhurðir og annað þar sem harkan þarf að vera mikil er hert til að auka styrkleika (sjá hert gler).
Vinsæll kostur er að láta sandblása gler í hurðum, handriðum eða sturtuklefum til að hindra útsýni eða mynda mynstur. Einnig er hægt að fá sýruunnið gler, það er fíngerðara en sandblásið og auðveldara er að þrífa það (sjá sandblásið / sýruþvegið gler).
Einfalt gler er í nær öllum tilvikum flotgler en við getum boðið upp á véldregið gler til notkunar við endurbyggingu á gömlum húsum. Með því að velja véldregið gler er hægt að viðhalda gamaldags útliti húsa, þar sem útlitið á því er öðruvísi en á flotgleri. Hægt er að tvöfalda véldregið gler með flotgleri, og er þá flotglerið haft að innan.
Magn hita sem streymir í gegnum 4mm glært gler er 86% (SF%)
Magn birtu sem streymir í gegnum 4mm glært gler er 90% (LT%)
Nánari tækniupplýsingar