
Climaplus, er ný tegund einangrunarglers sem við notum nú í stað hins svonefnda K-glers, en ástæn fyrir því að K-gler hefur fram til þessa verið kallað K-gler, er sú að „K“ er hluti mælieingarinnar sem notuð er til að mæla hitatap gegnum glerflöt, og hefur glerið þess vegna verið nefnt K-gler, með vísan í nefnda mælieiningu. Þetta heiti hefur þess vegna orðið með tímanum einskonar samheiti yfir einangrunargler.
Climaplus er ein albesta tegund einangrunarglers, sem völ er á í dag, hefur hámarks einangrunargildi auk þess að vera síður viðkvæmt fyrir varmaspennu, heldur en eldri gerðir svonefnds K-glers.
Climaplus hleypir inn sólarorkunni og birtunni en minnkar hitatapið. Climaplus getur því lækkað hitakostnaðinn verulega.
Mælieiningin U-gildi = 2,0 W/m2 K (K-gildi) er notuð til þess að mæla þá orku sem tapast út um rúðuna á hvern m². Því lægra sem gildið er, þeim mun minna er hitatapið út um rúðuna.
ATH. Samkvæmt byggingarreglugerð nr. 441/1998 skal nota einangrunargler með U-gildið 2,0 w/m² eða lægra í íbúðarhúsnæði og annað fullhitað húsnæði þar sem fólk dvelst að staðaldri.
Climaplus er gler húðað með sérstakri húð, sem endurkastar hitanum aftur inn í húsnæðið. Það hefur U-gildið 1,6 w/m², sem er einhver albesta einangrun sem völ er á. Samanber venjulegt gler hefur U-gildið 2,9 w/m².
Hægt er að lækka U-gildið enn frekar með því að fylla rúðuna með argon gasi í stað lofts.
Yfirleitt er talað um tvöfalt gler þegar um einangrunargler er að ræða en einnig er hægt að nota þrefalt gler. Með þreföldu gleri (venjulegu gleri) næst þá U-gildið 1,9 w/m² en hægt er að lækka þá tölu verulega ef notað er U-gler og það argon gasfyllt. Með þreföldu gleri næst einnig mjög góð hljóðeinagrun.
Magn hita sem streymir inn í gegnum 4mm Climaplus gler er 74% (SF%)
Magn birtu sem streymir inn í gegnum 4mm Climaplus gler er 79% (LT%)