
Saga Íspan
Þann 14. ágúst 1969 hóf Íspan starfsemi sína í 250 fermetra húsnæði í Skeifunni. Markmið fyrirtækisins var frá fyrsta degi að framleiða hágæða einangrunargler, og var í hvívetna leitast við að búa verksmiðjuna fullkomnustu tækjum sem völ var á. Fyrirtækið dafnaði vel í Skeifunni, og svo vel tóku iðnaðarmenn og húsbyggjendur framleiðslu Íspan að 1971, þá á vormánuðum var hafist handa við byggingu nýs verksmiðjuhúss. Skyldi fyrirhugað verksmiðjuhús rísa í Kópavogi, sem það og gerði. Á 110 dögum reis þar 2000 fermetra húsnæði sem hefur allt frá þeim tíma hýst framleiðslu og söludeild Íspan. Að Smiðjuvegi 7 hefur starfsemi fyrirtækisins styrkst, fyrirtækið vaxið og dafnað. Íspan býður viðskiptavinum sínum uppá úrval alls er að gleri og speglum lítur. Ásamt því að framleiða og selja einangrunargler, selur Íspan öll ísetningarefni, svo sem skrúfur, ídráttar-og þéttilista, undirleggsklossa og kítti. Í verksmiðju Íspan eru einnig framleiddar, eftir óskum viðskiptavina; hillur, speglar, og borðplötur, ýmist hringlaga, ferkantaðar ellegar sporöskjulagaðar. Hjá Íspan eru við störf 25 starfsmenn, í framleiðslu- og söludeild.